Ólöglegt varnarefni í núðlum
Innkallanir -
05.01.2022
Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.
Matvælastofnun varar við neyslu á tveimur framleiðslulotum af Jin Ramen spicy núðlum sem fyrirtækið Lagsmaður ehf. flytur inn. Varnarefnið etýlen oxíð fannst í vörunni en það er óheimilt að nota það í matvælaframleiðslu. Fyrirtækið hefur innkallað vöruna í samráði við heilbrigðiseftirlit Hafnarfjarðar, Garðarbæjar og Kópavogs.
Tilkynning um vöruna barst til Matvælastofnunar í gegnum RASFF hraðviðvörunarkerfi Evrópu um hættuleg matvæli og fóður
Innköllun á einungis við eftirfarnar framleiðslulotur:
- Vörumerki: Ottogi
- Vöruheiti: Jin Ramen Spicy noodles 120g
- Innflytjandi: Lagsmaður ehf. / Fiska.is
- Best fyrir: 7.07.2022 og 10.08.2022
- Framleiðsluland: Kórea
- Geymsluskilyrði: Á þurrum stað
-
Dreifing: Verslun Fiska.is, Nýbýlavegi 6, 200 Kópavogur
Neytendum sem keypt hafa vöruna er bent á að neyta hennar ekki og farga eða skila henni til verslun fiska.is á Nýbýlavegi.
Ítarefni
- Fréttatilkynning frá Lagsmanni efh
- Fréttatilkynning frá Heilbrigðiseftirliti Hafnarfjarðar, Garðarbæjar og Kópavogs