Viðbrögð þegar framandi villt dýr finnst hér á landi
Þegar framandi villt dýr finnst hér á landi koma ýmsir aðilar að málum. Mikilvægt er að góð samvinna sé milli þeirra þannig að viðbrögð verði fumlaus. Samstarfshópur Matvælastofnunar, Tilraunastöðvar HÍ að Keldum, Náttúrufræðistofnunar Íslands, Náttúruverndarstofnunar og Hafrannsóknarstofnunar hefur skrifað sameiginlega áætlun um viðbrögð við slíkum málum. Í henni er m.a. tilgreint hverjum skuli tilkynnt um fund á framandi dýri og hvað gerist í framhaldinu.
Áætlunin tekur til viðbragða þegar villt dýr af tegund sem ekki er hluti af villta íslenska dýrastofninum finnst hér á landi. Hún á þó ekki við um fugla. Undanskilin eru einnig viðbrögð við hvalreka og landgöngu hvítabjarna, sem sérstakar viðbragðsáætlanir gilda um. Áætlunin gildir heldur ekki um minka og rottur þótt þau teljist ekki til villta íslenska dýrastofnsins. Viðbragðsáætlunin er stöðugt í endurskoðun og fyrirhugað er að bæta við hana leiðbeiningum um ýmsar dýrategundir.
Tilgangurinn með áætluninni er að tryggja að rétt sé staðið að handsömun, aflífun, sýnatökum og rannsóknum á dýrinu, og varðveislu eða eyðingu á hræi. Þetta er mikilvægt til að hindra eins og kostur er útbreiðslu smitefna sem dýrið getur hugsanlega borið með sér og að hræ dýrsins sé meðhöndlað á þann hátt að það megi varðveita ef það er talið áhugavert.
Sá sem verður var við dýr sem hér um ræðir, á að tilkynna það til Matvælastofnunar. Það má gera með því að hringja í síma 5304800, senda ábendingu með því að smella á ábendingarhnapp á heimasíðu MAST (www.mast.is) eða senda tölvupóst á mast@mast.is. Héraðsdýralæknir í því umdæmi sem dýrið er í, hefur umsjón með fyrstu viðbrögðum og kemur málinu í það ferli sem lýst er í viðbragðsáætluninni. Ef finnandi hefur samband fyrst við aðra en MAST, t.d. NÍ, Keldur, Hafró, Náttúruverndarstofnun, lögreglu, 112, sveitarfélag, Náttúrustofu, heilbrigðiseftirlit, meindýraeyða eða aðra, skulu þeir aðilar tryggja að tilkynningin berist til MAST.