Fara í efni

Dýraminjar / veiðiminjar

Dýraminjar geta mögulega borið smitefni til landsins hafi þær ekki undirgengist fullnægjandi meðhöndlun. Tilkynna skal slíkan innflutning til Matvælastofnunar og leggja fram gögn um meðhöndlun auk staðfestingar á dýrategund. Ef um er að ræða dýrategund sem er á válista (CITES) þá skal leggja fram viðeigandi vottorð, bæði frá út- og innflutningslandi. Hérlendis er útgáfa CITES vottorða í höndum Umhverfisstofnunar. 

Innflutning skal tilkynna í þjónustugátt MAST, ýmist með umsókn nr. 4.32 eða 7.01 (ef um er að ræða póstsendingu) og senda með eftirfarandi gögn:

  • Yfirlýsingu hamskera á meðhöndlun minjanna (taxidermist statement on processing of trophies)
  • Sundurliðaðan reikning
  • CITES vottorð ef um er að ræða dýrategund á válista

Séu viðeigandi gögn ekki lögð fram skulu minjarnar skoðaðar af Matvælastofnun. Innheimt er fyrir slíka skoðun skv. gjaldskrá MAST.

Standist sendingin innflutningsskilyrði er heimild gefin út af MAST. 

Uppfært 24.07.2024
Getum við bætt efni síðunnar?