Fara í efni

Slátrun

Slátrun

Heimaslátrun

Sláturdýrum sem slátra á í því skyni að dreifa afurðum á markaði skal slátra í sláturhúsum með starfsleyfi. Eigendum búfjár er heimilt að slátra búfé sínu til eigin neyslu.  Óheimilt er því að dreifa eða selja afurðir úr heimaslátrun til annarra. 

Eigendur búfjár sem slátra eigin fé þurfa að huga vel að velferð dýra við aflífun og hreinlæti við meðferð sláturafurða. Sjúkdómsvaldandi örverur eins og listería, E. coli (STEC), salmonella og Clostridium geta borist með kjötafurðum í fólk.

Bændur sem hafa hug á að starfrækja lítið sláturhús sem samþykkta starfsstöð fyrir sölu og dreifingu sláturafurða eru hvattir til að kynna sér lög um matvælireglugerð um lítil matvælafyrirtæki og hefðbundin matvæli og styrki nýs Matvælasjóðs sem hefur opnað fyrir umsóknir. Starfsemin er háð starfsleyfi frá Matvælastofnun og fá framleiðendur dýraafurða úthlutað samþykkisnúmeri þegar leyfi er veitt.

Matvælastofnun hefur eftirlit með öryggi matvæla og velferð dýra í sláturhúsum, í flutningi og hjá frumframleiðendum (bændum). Heilbrigðiseftirlit sveitarfélaga hefur eftirlit með sölu og dreifingu sláturafurða.

Slátrún í litlum sauðfjár og geitasláturhúsum

Framleiðsla í litlum sauðfjár og geitasláturhúsum - leiðbeiningar

Velferðarþættir og merkingar sláturdýra

Tilgangur þessara leiðbeininga er að samræma skoðanir eftirlitsdýralækna á velferðarþáttum í sláturhúsum. Leiðbeiningarnar byggja á kröfum í lögum og reglugerðum sem fjalla um velferð, hreinleika og merkingar sláturdýra, innra eftirlit sláturhúsa með þessum þáttum og eftirlit sem framkvæmt er af eftirlitsdýralæknum í sláturhúsum. Til stuðnings við eftirlitið fylgja ljósmyndir með leiðbeiningunum. Þó svo að leiðbeiningarnar séu ætlaðar eftirlitsdýralæknum í sláturhúsum geta þær einnig nýst öðrum stjórnvöldum, matvælaframleiðendum og sláturhúsum.

Flutningur sláturdýra

Kólígerlar í sauðfjárafurðum í sláturhúsum

Eftirlitshandbækur