Fara í efni

Samstarfsráð Matvælastofnunar

Samstarfsráð Matvælastofnunar skal hafa reglubundna samvinnu og samráð við þá aðila, félög, samtök og stofnanir sem tengjast starfsemi stofnunarinnar. 

Í ráðinu eru kynntar árlegar áætlanir um störf stofnunarinnar, skýrslur um starfsemina og önnur mikilvæg málefni sem tengjast starfi stofnunarinnar. Fulltrúum samstarfsráðs er einnig heimilt að óska eftir umfjöllun um tiltekin málefni á fundum ráðsins. 

Samstarfsráðið er vettvangur til samráðs og skipta á upplýsingum sem ætlað er að auka gagnkvæman skilning og gagnsæi stjórnsýslunnar.

Samkvæmt reglugerð um samstarfsráð Matvælastofnunar, nr. 940/2019 skipar ráðherra samstarfsráðið skv. tilnefningu 16 aðila.

Samstarfsráðið (til 1. janúar 2025):

  • Vigdís Häsler, tilnefnd af Bændasamtökum Íslands
  • Linda Karen Gunnarsdóttir, tilnefnd af Dýraverndarsambandi Íslands
  • Tómas Jónsson, tilnefndur af Dýralæknafélagi Íslands
  • Anna Margrét Halldórsdóttir, tilnefnd af Embætti landlæknis
  • Guðný Hjaltadóttir, tilnefnd af Félagi atvinnurekenda
  • Þórhallur Ingi Halldórsson, tilnefndur af Háskóla Íslands
  • Ragnhildur Helga Jónsdóttir, tilnefnd af Landbúnaðarháskóla Íslands
  • Elías Blöndal Guðjónsson, tilnefndur af Landssambandi veiðifélaga
  • Oddur Már Gunnarsson, tilnefndur af Matís
  • Gunnar Alexander Ólafsson, tilnefndur af Neytendasamtökunum
  • Baldur Dýrfjörð, tilnefnd af Samorku
  • Heiðrún Björk Gísladóttur, tilnefnd af Samtökum atvinnulífsins
  • Heiðmar Guðmundsson, tilnefndur af Samtökum fyrirtækja í sjávarútvegi
  • Gunnar Sigurðarson, tilnefndur af Samtökum iðnaðarins
  • Bjarni Friðrik Jóhannesson, tilnefndur af Samtökum verslunar og þjónustu
  • Guðný Rut Pálsdóttir, tilnefnd af Tilraunastöð Háskóla Íslands í meinafræði að Keldum
Uppfært 02.09.2024
Getum við bætt efni síðunnar?