Fara í efni

Kröfur til áburðarframleiðslu

Til að framleiða áburð þarf:

  1. Starfsleyfi frá Matvælastofnun
  2. Gæðahandbók og innra eftirlit samþykkt af Matvælastofnun
  3. Merkingar og skráningu sem tryggir rekjanleika afurða

Nánari upplýsingar:

Leiðbeiningar

Þeir sem vilja flytja inn eða framleiða hér á landi áburð eða jarðvegsbætandi efni verða að tilkynna það til Matvælastofnunar og skulu allar vörur skráðar hjá Matvælastofnun áður en kynning, dreifing og sala hefst.

  • Öllum sem flytja inn eða framleiða áburð ber að gefa Matvælastofnun upplýsingar um sölu áburðar og magn kadmíum sem flutt hefur verið inn. Yfirlýsing um kadmíuminnihald ólífræns áburðar þarf að liggja fyrir áður en sala hefst. Innihald kadmíums (Cd) á að vera minna en 50 mg kadmíum í hverju kílói fosfórs (P). Þessi yfirlýsing á að fylgja vörunni á öllum heildsölustigum og hefur kaupandi rétt á að sjá hana.
  • Merkja ber áburð og jarðvegsbætandi efni greinilega með vörulýsingu. Merkingar og texti á hugsanlegum fylgiseðlum eiga að vera á íslensku. Ef merking á umbúðum er ekki á íslensku skal tryggja kaupanda tilsvarandi upplýsingar á fylgiseðli á íslensku. Fylgiseðlar með lausri vöru skulu alltaf vera á íslensku. Sjá nánar um merkingar í greinum 11. - 17. í reglugerðinni.

Óæskileg efni í áburði:
- Magn kadmíums í ólífrænum áburði má ekki fara yfir 50 mg Cd pr. kg P.
- Magn bíurets í þvagefni (urea) má ekki vera hærra en gefið er upp í viðauka 1.
- Klórinnihald má ekki fara yfir þau mörk sem skráð eru í viðauka 1.

  • Innheimt er eftirlitsgjald af öllum áburði til að standa straum af kostnaði við rekstur Matvælastofnunar og er það 0,1% af innflutningsverði (cif) innfluttrar vöru en 0,1% af söluverði (án VSK) innlendrar vöru.
  • Frekari upplýsingar um innflutning og merkingar á áburði er að finna í bréfi til innflytjenda og framleiðenda áburðar.

Eftirlit

Markmið áburðareftirlits

Markmið eftirlits með áburði er að tryggja svo sem kostur er bændum og öðrum notendum fullnægjandi vöru í samræmi við vörulýsingar og kröfur til landbúnaðarafurða um hollustuhætti.  Eftirlitið skal einnig tryggja svo sem kostur er að áburður sé ekki skaðlegur dýrum, mönnum eða umhverfi.
 

Lög og reglugerðir

Áburðareftirlit fer samkvæmt lögum nr. 22 frá 29. mars 1994, um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru, ásamt með síðari breytingum og reglugerðum nr. 398 frá 29. júní 1995, um áburð og jarðvegsbætandi efni, ásamt með síðari breytingum og nr. 630 frá 26. júní 2007 um ólífrænan áburð.  Einnig eru ákvæði varðandi áburð í öðrum lögum og reglugerðum sem fjalla um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim. Lögin og reglugerðirnar er að finna á heimasíðu Matvælastofnunar með því að smella hér.

Eftirlit

Eftirlit með innfluttum áburði fer fram við innflutning. Innflytjendum ber að tilkynna Matvælastofnun í hvert sinn sem þeir flytja inn áburð og fer þá fram skjalaskoðun og eftir atvikum, sýnataka.

 

Uppfært 21.08.2024
Getum við bætt efni síðunnar?