Handþvottur
Með handþvotti verndar þú heilsu þína og annarra
Gott hreinlæti er mjög mikilvægt til þess að hindra mengun/smit frá okkur sjálfum yfir í mat. Það getur m.a. borist mikið af örverum með höndum milli matvæla og frá umhverfi yfir í matvæli. Þetta á við í matvælafyrirtækjum og heima í eldhúsi og hvar sem verið er með matvæli.
Þess vegna þarf að þvo hendur:
- áður en maður byrjar að meðhöndla matvæli
- milli meðhöndlunar, hrárra matvæla t.d. kjöts, grænmetis, og matar sem er tilbúinn til neyslu
- eftir salernisferð
- eftir hósta eða snertingu við nef
- eftir meðhöndlun sára
Það getur verið nauðsynlegt að hætta alveg að útbúa eða meðhöndla mat ef maður er með sár/ígerð á höndum, eða ef maður hefur t.d. niðurgang sem getur þá smitast til þeirra sem borða matinn.
Það er mjög mikilvægt að hindra svona smitleið í matvælafyrirtækjum.
Svona þvær maður hendur...
- Takið hringa af.
- Skolið hendur undir rennandi volgu vatni.
- Dreifið og núið sápu vel um hendurnar og þvoið þær þannig í 10-15 sekúndur.
- Passið að þvo vel fingurgóma og naglasvæði.
- Það getur verið nauðsynlegt að þvo handleggi ef þeir koma í snertingu við matvæli.
- Skolið alla sápu af höndunum með rennandi vatni.
- Þurrkið með pappírsþurrku.
- Notið gerileyði, ef matvælafyrirtækið mælir svo fyrir.
- Hanska þarf að þvo líka eins og hendur.
Athugið að:
Handklæði og tauþurrkur verða fljótt mjög menguð að bakteríum, og dreifa því bakteríum. Í matvælafyrirtækjum er skylt að nota pappírsþurrkur.
Handþvottur skiptir afskaplega miklu máli því hendurnar koma víða við, bæði þar sem mengunarefni eru t.d. þvottaefni, olíuvörur, bensín og þar sem fjöldi sýkla er t.d. í saur og jarðvegi og á dýrum og hlutum sem við snertum ...og svo við matinn sem við borðum. Það er því mikil hætta á að hendur beri með sér smit í matinn.
Útskýrið þetta vel fyrir börnunum
Þvoið hendur áður en farið er að borða