Fara í efni

Kartöfluútsæði

Um ræktun útsæðis hér á landi fer í reglugerð um kartöfluútsæði nr. 455/2006. Þegar um innlent útsæði er að ræða er eingöngu heimilt að taka til sölu eða dreifingar útsæði frá kartöfluræktendum sem hafa fengið leyfi frá Matvælastofnun til sölu á tilteknu afbrigði (yrki).

Heimilt er að selja innflutt útsæði ef það er flutt til landsins sem útsæði og með samþykktu heilbrigðisvottorði. Við dreifingu á kartöfluútsæði skal þess gætt að það komist ekki í snertingu við matarkartöflur eða þá hluti (s.s. pökkunarvélar, bretti, lyftara o.fl.), sem notaðir hafa verið við dreifingu á matarkartöflum, nema því aðeins að sótthreinsun hafi áður farið fram. Í smásölu skal útsæðið haft aðskilið frá matarkartöflum og skal tilgreina á tryggilegan hátt að um kartöfluútsæði sé að ræða. Heimil eru bein viðskipti tveggja ræktenda með útsæði með þeirri undantekningu, að finnist skaðvaldur eins og kartöfluhnúðormur eða hringrot hjá ræktanda er honum óheimilt að afhenda öðrum ræktanda kartöflur til niðursetningar. 

Eftirtalin afbrigði (yrki) eru ræktuð í stofnræktun:

  • Gullauga 
  • Helga 
  • Rauðar íslenskar 
  • Premiere 

Stofnútsæðisrækt er stunduð í Eyjafirði og Hornafirði.
Einar Grétar Jóhannsson, Eyrarlandi við Eyjafjörð, ræktar Gullauga, Premiere og Rauðar íslenskar.

Birgir Hauksson í Sigluvík, ræktar Gullauga.
Hákon Bjarnason í Dilksnesi við Hornafjörð ræktar Gullauga, Helgu og Premiere.

Útsæðisleyfisahafar

Eftirtaldir ræktendur hafa leyfi Matvælastofnunar til að afhenda innlent útsæði á almennan markað. 

Guðni Sigvaldason Borgartúni 1, 851 Hellu Gullauga Rauðar Premier  
Sigurbjartur Pálsson Skarði, 851 Hellu Gullagua  Rauðar  Premier  
Önnupartur ehf. Önnuparti, 851, Hellu Gullauga Rauðar  Premier  
Gunnar Bjarnason Litlu-Hildisey, 861 Hvolfsvelli Gullauga   Premier Helga
Stefán Rúnar Sævarsson Syðri Grund 2, 610 Grenivík Gullauga Rauðar  Premier  
Steindór Einarsson Víðastöðum, 700 Egilsstöðum Gullauga      

 

Uppfært 24.03.2025
Getum við bætt efni síðunnar?