Fara í efni

Skráargatið

Skráargatið, einfalt að velja hollara

 

Skráargatið er opinbert samnorrænt merki sem finna má á umbúðum matvara sem uppfylla ákveðin skilyrði varðandi samsetningu næringarefna. Markmiðið með Skráargatinu er að neytendur geti á einfaldan hátt valið hollari matvöru. 

Hér er að finna upplýsingar um hvað felst í Skráargatinu og hvaða skilyrði gilda um notkun þess. Frekari upplýsingar fyrir neytendur er að finna á vef Embættis landlæknis

Hvað felst í Skráargatinu?

Skráargatið er opinbert samnorrænt merki sem finna má á umbúðum matvara sem uppfylla ákveðin skilyrði varðandi samsetningu næringarefna. Markmiðið með Skráargatinu er að neytendur geti á einfaldan hátt valið hollari matvöru. 

Vörur sem bera Skráargatið verða að uppfylla eftirfarandi skilyrði varðandi samsetningu næringarefna:

Skráargatsmerktar vörur eru því næringarlega séð betur samsettar m.t.t. þessara næringarefna en aðrar vörur í sama flokki sem uppfylla ekki skilyrði til að bera merkið. 

Skráargatið setur lágmarkskilyrði fyrir trefjar og heilkorn og hámarksskilyrði fyrir sykur, salt og fitu í 33 matvælaflokkum. Skilyrðin eru mismunandi eftir matvælaflokkum en þá má draga saman í eftirfarandi flokka:

  • Grænmeti, ávextir, ber og hnetur
  • Mjöl, korn og hrísgrjón
  • Grautar, brauð og pasta
  • Mjólk, sýrðar mjólkurvörur og jurtavakostir
  • Ostar og jurtavakostir
  • Fita, fitublöndur og olíur
  • Fiskur, skelfiskur og vörur úr fiski
  • Kjöt, unnar kjötvörur og kjötafurðir
  • Jurtavörur
  • Tilbúnir réttir, samlokur, súpur o.fl.
  • Salatsósur og sósur

Skráargatið er yfirleitt hægt að finna á umbúðum matvara en merkið er líka hægt að nota á ópakkaðan fisk, ávexti, ber, kartöflur og grænmeti, einnig brauð, ost og óunnið kjöt sem uppfylla skilyrði fyrir merkið. Matvæli sem bera merkið þurfa að vera merkt með næringargildi. Þetta á þó ekki við ópakkaðar matvörur.

Framleiðendum og innflytjendum er frjálst að nota Skráargatið á þær vörur sem uppfylla skilyrðin til að bera merkið. 

Auk þess að vera upplýsandi fyrir neytendur er Skráargatið hvatning fyrir matvælaframleiðendur til að þróa hollari vörur og stuðlar þannig að auknu úrvali af hollum matvælum á markaði. Þannig getur Skráargatið stuðlað að heilsusamlegu mataræði sem er í samræmi við opinberar ráðleggingar um mataræði.

Á Íslandi standa Matvælastofnun og Embætti landlæknis á bak við Skráargatið. Matvælastofnun og Heilbrigðiseftirlit sveitarfélaga sjá um að farið sé eftir reglum um notkun merkisins. 

Val þitt á matvörum hefur áhrif á heilsu þína

Veldu

Ítarefni

Uppfært 18.01.2023
Getum við bætt efni síðunnar?