Fara í efni

Merking og skráning hunda

Eftirfarandi reglur gilda um merkingu og skráningu hunda

  1. Allir hundar eldri en 12 vikna gamlir skulu vera örmerktir.
  2. Dýralæknir sem framkvæmir örmerkingu skal skrá örmerkisnúmerið í miðlægan gagnagrunn sem samþykktur er af Matvælastofnun. Eigandi getur óskað eftir útprentaðri staðfestingu af skráningunni.
  3. Dýraauðkenni er eini miðlægi gagnagrunnurinn á Íslandi sem samþykktur er af Matvælastofnun.
  4. Umráðamaður hunds getur bætt við og breytt upplýsingum um sín dýr  með aðgang með rafrænum skilríkjum eða íslykli og skal tryggja að upplýsingarnar um hundinn í gagnagrunninum séu réttar á hverjum tíma. Við eigandaskipti skal umráðamaður yfirfæra dýrið á kennitölu nýs eiganda í Dýraauðkenni.
  5. Umráðamaður hunds skal kynna sér reglur þess sveitarfélags sem hann tilheyrir og hlíta gildandi samþykktum um hundahald.

Örmerking

Skv. reglugerð um velferð gæludýra er skylt að örmerkja og skrá í miðlægan gagnagrunn alla hunda. Örmerking er framkvæmd af dýralækni en örmerkið sjálft er tölvuflaga á stærð við hrísgrjón sem er sett undir húð á milli herðablaða eða vinstra megin í hnakkadramb hundsins með þar til gerðri sprautu. Örmerkið felur í sér einkvæman talnakóða (15 tölustafir) og er lesið með örmerkjaskanna. Hvolpar eru oftast örmerktir þegar þeir fá sína fyrstu skoðun og bólusetningu hjá dýralækni við 8 vikna aldur. 

Dýraauðkenni

Dýraauðkenni er gagnagrunnur á netinu, rekinn af Dýralæknafélagi Íslands, sem heldur utan um örmerki gæludýra (hunda, katta og kanína).

Allir geta án innskráningar leitað að örmerkjanúmeri eða eyrnarmerki til að fá upplýsingar um eiganda viðkomandi dýrs.

Eingöngu dýralæknar/dýralæknastofur hafa aðgang að gagnagrunninum til þess að skrá ný dýr.

Umráðamenn geta skráð sig inn (með rafrænum skilríkjum eða íslykli) til þess að setja inn myndir af dýrinu, skrá ítarlegri eða breyta tölvupósti eða upplýsingum um símanúmer, skrá eigendaskipti eða tilkynna um týnt dýr. Dýr skráist sjálfkrafa til heimilis á lögheimili umráðamanns og uppfærist það reglulega samkvæmt Þjóðskrá. Umráðamenn skulu tryggja að upplýsingar um dýrið séu réttar á hverjum tíma.

 

Uppfært 29.01.2020
Getum við bætt efni síðunnar?