Útgáfa rekstrarleyfis vegna fiskeldis til Landeldis ehf. í Þorlákshöfn
Matvælastofnun hefur veitt Landeldi ehf. rekstrarleyfi til fiskeldis að Laxabraut 21 - 25, Þorlákshöfn. Matvælastofnun auglýsti tillögu að rekstrarleyfi á vef stofnunarinnar þann 11. október 2021 og var frestur til að skila inn athugasemdum til 8. nóvember 2021.
Landeldi ehf sótti um nýtt rekstrarleyfi vegna 3.450 tonna hámarkslífmassa í seiða- og matfiskeldi á laxi, bleikju og urriða að Laxabraut 21 - 25, Þorlákshöfn. Umsókn um nýtt rekstrarleyfi var móttekin þann 26. apríl 2021. Matvælastofnun staðfestir gildistöku rekstrarleyfis Landeldis ehf, FE-1185, þegar úttekt starfsstöðvar hefur farið fram en starfsemin er einnig háð starfsleyfi Umhverfisstofnunar.
Framkvæmd fyrirtækisins fór í gegnum mat á umhverfisáhrifum í samræmi við lög um mat á umhverfisáhrifum.
Heimilt er að kæra ákvörðun Matvælastofnunar um útgáfu rekstrarleyfisins til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála og er kærufrestur einn mánuður frá birtingu þessarar auglýsingar.