Fara í efni

Strok laxfiska úr landeldisstöð

Matvælastofnun barst tilkynning frá Arctic Smolt ehf. föstudaginn 24. maí 2024 um óhapp sem leiddi til stroks eldislax úr fiskeldisstöð þeirra að Norður-Botni, Tálknafirði.

Strokið uppgötvaðist þegar viðvörunarkerfi stöðvarinnar tilkynnir of háa vatnsstöðu í tanki svo vatn flæddi uppúr og fiskur lenti á gólfi stöðvarinnar. Einhver hluti fiskanna náði að fara í gegnum ristar sem eru á niðurföllum á gólfi og bárust út í sjó. Seiðin voru u.þ.b. 40 gr. að meðalvigt og ósmoltuð en í tankinum voru 516.159 seiði fyrir atburðinn. Litlar líkur eru á því að seiðin hafi getað smoltast í frárennsli og orðið sjógönguhæf, því er ólíklegt að þau lifi af í sjó.

Samkvæmt upplýsingum frá rekstraraðila enduðu 22.352 seiði á gólfi fiskeldisstöðvarinnar en fyrir utan útrásina úr stöð fundust 104 dauð seiði. Net voru lögð í sjó en ekkert veiddist. Talning seiða í tanki eftir atburðinn hefur ekki farið fram.

Matvælastofnun hefur kallað eftir gögnum og upplýsingum er varða viðbrögð fyrirtækisins og er atvikið til rannsóknar hjá stofnuninni.


Getum við bætt efni síðunnar?