Fara í efni

Sauðfjárbændur athugið!

Athygli er vakinn á því að frestir til þess að sækja um kaup/sölu líflamba eru liðnir.

  • Framlengdur frestur til að sækja um sölu líflamba rann út þann 1. Júlí 2024.
  • Framlengdur frestur til að sækja um kaup á líflömbum rann út þann 20. Ágúst 2024.

Nokkuð ber á því að eftirlegukindur eru að senda tölvupósta og biðja um að fá afgreiðslu sölu-/kaupaumsókna og höfum við reynt að koma til móts við þær óskir eftir bestu getu. En í ljósi þess hve framorðið er orðið hausts og göngur og réttir víða að byrja/byrjaðar hefur verið tekin ákvörðun um að ekki verður orðið við sölu/kaupaóskum sem berast eftir 13. September.


Getum við bætt efni síðunnar?