Riða á einum bæ til viðbótar á Tröllaskaga
Riðusmit hefur verið staðfest á einum bæ til viðbótar í Tröllaskagahólfi. Bærinn heitir Minni-Akrar og er staðsettur í Akrahreppi í Skagafirði. Matvælastofnun vinnur nú að öflun upplýsinga og undirbúningi aðgerða.
Tilfellið var staðfest í sýni sem tekið var í sláturhúsi og greint á Tilraunastöð Háskóla Íslands að Keldum. Á búinu er nú um hundrað fjár.
Matvælastofnun ítrekar að flutningar fjár innan Tröllaskagahólfs og frá hólfinu eru bannaðir. Matvælastofnun hvetur bændur til þess vera vakandi fyrir einkennum riðuveiki í kindum sínum og hafa þá samband við héraðsdýralækni sem sér til þess að sýni séu tekin. Einnig er bændum bent á að hafa samband vegna sýnatöku úr fé sem drepst eða er aflífað sökum slysa eða annarra sjúkdóma. Sýnatakan er bændum að kostnaðarlausu.
Ítarefni
- Upplýsingasíða Matvælastofnunar um riðuveiki
- Listi yfir riðutilvik síðustu 20 ára
- Aðgerðir hafnar vegna riðuveiki í Skagafirði - frétt Matvælastofnunar 06.11.20
- Útbreiðsla riðu á þrjá bæi staðfest - frétt Matvælastofnunar 27.10.20
- Útbreiðsla riðu í Tröllaskagahólfi - frétt Matvælastofnunar 23.10.20
- Grunur um nýtt riðutilfelli í Skagafirði - frétt Matvælastofnunar 16.10.20
- Riða í Skagafirði staðfest - frétt Matvælastofnunar 22.10.20