Ólöglegt varnarefni í lífrænu hamborgarabrauði
Frétt -
26.01.2021
Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.
Matvælastofnun varar við neyslu á Schnitzer lífrænu hamborgarabrauði sem Einstök matvæli flytja inn. Varnarefnið etýlen oxíð fannst í brauðinu sem er ólöglegt að nota í matvælaframleiðslu. Fyrirtækið hefur innkallað vöruna með aðstoð Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur.
Innköllunin á einungis við eftirfarandi framleiðslulotur:
- Vöruheiti: Gluten-Free Organic Hamburger Buns
- Best fyrir dagsetningar: 03.03.2021, 12.04.2021, 15.04.2021
- Lotunúmer: 030321, 120421, 150421
- Strikamerki: 402299345260
- Nettómagn: 125 g
- Framleiðandi: Schnitzer GmbH & Co.
- Framleiðsluland: Þýskaland
- Innflytjandi: Einstök matvæli, Lambhagavegi 13, Reykjavík
- Dreifing: Verslanir Hagkaupa; Nettó Glerártorgi, Krossmóa, Mjódd og Granda; Heimkaup og Melabúðin.
Viðskiptavinir sem keypt hafa ofangreinda vöru eru beðnir um að neyta hennar ekki. Hægt er að skila henni í þeirri verslun þar sem hún var keypt gegn endurgreiðslu.
Nánari upplýsingar um innköllunina veitir Einstök matvara ehf. í síma 557 1771.