Ólöglegt innhaldsefni í orkudrykkjum
Frétt -
08.03.2024
Matvælastofnun vill upplýsa um innköllun á öllum Prime orkudrykkjum með best fyrir júní 2025 sem Krónan ehf. flytur inn vegna þess að drykkirnir innihalda efni sem er ekki samþykkt í matvælum öðrum en fæðubótarefnum. Fyrirtækið hefur í samráði við Heilbrigðiseftirlit Garðabæjar, Hafnarfjarðar, Kópavogs, Seltjarnarnes og Mosfellsbæjar (HEF) innkallað drykkina.
Innköllunin á við allar framleiðslulotur og tegundir með best fyrir júní 2025:
- Vörumerki: Prime Energy,
- Framleiðandi: Prime Hydration
- Nettómagn: 330 ml dós
- Innflytjandi: Krónan, Dalvegi 10-14
- Framleiðsluland: Bretland
- Dreifing: Allar þjónustustöðvar N1
- Vöruheiti: Prime Lemon Lime
- Lotunúmer/Best fyrir dagsetningar: Öll lotunúmer með best fyrir júní 2025
- Vöruheiti: Prime Blue Raspberry
- Lotunúmer/Best fyrir dagsetningar: Öll lotunúmer með best fyrir júní 2025
- Vöruheiti: Prime Ice Pop
- Lotunúmer/Best fyrir dagsetningar: Öll lotunúmer með best fyrir júní 2025
- Vöruheiti: Prime Orange Mango
- Lotunúmer/Best fyrir dagsetningar: Öll lotunúmer með best fyrir maí 2025
- Vöruheiti: Prime Strawberry Watermelon
- Lotunúmer/best fyrir dagsetningar: Öll lotunúmer með best fyrir júní 2025
- Vöruheiti: Prime Tropical Punch
- Lotunúmer/best fyrir dagsetningar: Öll lotunúmer með best fyrir júní 2025
Viðskiptavinum sem hafa verslað vörurnar á þjónustustöðvum N1 er bent á að skila þeim á viðkomandi stöð gegn fullri endurgreiðslu. Taka skal fram að varan er ekki talin skaðleg, heldur er L-þíanín skilgreint sem nýfæði og hefur ekki fengið leyfi í öðrum matvælum en fæðubótaefnum í Evrópu.