Mygla í vegan smjöri
Frétt -
02.09.2020
Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.
Matvælastofnun varar við neyslu á tveimur lotum af vegan smjöri frá Naturli vegna hættu á mygluvexti. Kjarnavörur hf. sem flytja inn vöruna eru að innkalla hana af markaði, í samráði við Heilbrigðiseftirlit Hafnarfjarðar- og Kópavogssvæðis.
Matvælastofnun fékk upplýsingar um vöruna í gegnum RASFF evrópska viðvörunarkerfið um hættuleg matvæli og fóður á markaði og gerði heilbrigðiseftirlitinu viðvart.
Innköllunin á einungis við eftirfarandi framleiðslulotur:
- Vöruheiti: Naturli lífrænt vegan smjör
- Þyngd: 225 g
- BBD: 22.09.2020 og 23.09.2020
- Framleiðandi: Grönvang Food Aps, Vejen, Denmark
- Strikamerki: 5701977062118
- Dreifing: Hagkaup, Bónus, Krónan, Nettó, Kjörbúðin, Iceland, Fjarðarkaup, Melabúðin og Veganbúðin
Kjarnavörur svara spurningum viðskiptavina um að fá vöruna bætta á netfanginu kjarnavorur@kjarnavorur.is eða í síma 565-1430.