Mygla í köku
Frétt -
28.07.2020
Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.
Matvælastofnun vekur athygli neytenda á innköllun á Drömmekage frá Danmörku sem fyrirtækið Ásbjörn Ólafsson ehf. flytur inn. Innköllunin er vegna möguleika á myglu í kökum áður en síðasti söludagur rennur upp. Fyrirtækið hefur innkallað kökurnar, í samráði við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur.
Innköllunin á eingöngu við um eftirfarandi fjórar framleiðslulotur:
- Vörumerki: Dan cake
- Vöruheiti: Drömmekage med lækker kokostopping
- Nettómagn: 350 g
- Best fyrir dagsetningar: 28/8, 2/9, 22/9, 28/9 (2020)
- Strikamerki: 5709152018462
- Framleiðandi: Dan Cake A/S, Hjortsvangen 15, 7323 Give, Danmörk
- Innflytjandi: Asbjörn Ólafsson ehf, Köllunarklettsvegi 6, 104 Reykjavík
- Dreifing: Verslanir um allt land
Þeir neytendur sem eiga umrædda vöru eru beðnir um að neyta hennar ekki og farga. Nánari upplýsingar um innköllunina veitir Ásbjörn Ólafsson ehf. í síma 820 1146.