Fara í efni

Matvælastofnun heimilar meðhöndlanir við laxalús

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Þriðjudaginn 30. maí heimilaði Matvælastofnun lyfjameðhöndlanir með baðlausnum við laxalús á þremur eldissvæðum á Vestfjörðum. Ráðgert er að meðhöndlanirnar fari fram í júní næstkomandi.

Meðhöndlað verður með lúsalyfinu AlphaMax vet. (Deltametrín) í baðlausnum á eldissvæðunum Hvestu í Arnarfirði og Kvígindisdal í Patreksfirði en með lúsalyfinu Salmosan vet. (Axametifos) baðlausn á eldissvæðinu Tjaldanesi í Arnarfirði.

Matvælastofnun heimilaði þessar meðhöndlanir eftir ráðgjöf frá Fisksjúkdómanefnd og umsögn frá Hafrannsóknarstofnun. Út frá fyrirliggjandi gögnum um stöðu og þróun laxalúsa á eldissvæðunum telur Matvælastofnun mikilvægt að bregðast við á þessum svæðum til að minnka smitálag og draga úr líkum á smitálagi á villta laxfiska.


Getum við bætt efni síðunnar?