Grunur um svínaflensu á öðru svínabúi
Frétt -
06.11.2009
Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.
|
Grunur hefur vaknað um
inflúensu í svínum á einu svínabúi í Eyjafirði. Sýni verða tekin í dag og send til
rannsóknar á Tilraunastöð HÍ að Keldum. Svínaflensa smitast ekki með svínakjöti og fólki stafar
því engin hætta af neyslu þess. Til að hindra útbreiðslu
smits til annarra búa hefur bann verið sett á flutning dýra frá búinu
og sóttvarnir hertar. Einkenni inflúensu í svínum eru m.a. hár hiti og lystarleysi, kvef og hósti. Svínin ná sér oftast eftir þriggja til sex daga veikindi. |
Sú
almenna regla gildir að óheimilt er að slátra veikum dýrum, þetta á
jafnt við um svínaflensu sem aðra sjúkdóma. Ekki er ástæða til að banna
slátrun einkennalausra svína þótt önnur svín á búinu séu veik.
Svínaflensusmit berst ekki í fólk með neyslu svínakjöts.
Engin tengsl eru talin vera milli þessa grunaða tilfellis og fyrstu staðfestu greiningu á svínainflúensu í svínum á Minni-Vatnsleysu.
Ítarefni
- Grunur um svínaflensu í íslenskum svínum
- Fræðslupistill um inflúensu í svínum
- Svínainflúensa greinist í norskum svínum
- Inflúensa í svínum á Norður-Írlandi af völdum veirunnar a H1N1