Varnarefni yfir mörkum í núðlum
Innkallanir -
29.07.2022
Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.
Matvælastofnun varar við neyslu á einni framleiðslulotu af Shin Red Super Spicy Noodles með vörumerkinu NONGSHIM, vegna þess að varnarefnið Iprodione greindist yfir leyfilegum mörkum. Innflutningsfyrirtækin Lagsmaður ehf. / Fiska.is og Market Hong Phat ehf. hafa innkallað núðlurnar í samráði við heilbrigðiseftirlitin.
Innköllunin á einungis við eftirfarandi framleiðslulotu:
- Vörumerki: NONGSHIM
- Vöruheiti: Shin Red Super Spicy Noodles
- Best fyrir dagsetning: 15.09.2022
- Strikamerki: 8801043053167
- Nettómagn: 120 g
- Framleiðandi: Nongshim Co., Ltd.
- Framleiðsluland: Suður-Kórea
- Dreifing: Fiska.is, Nýbýlavegi 6, 200 Kópavogi og Market Hong Phat, Suðurlandsbraut 6, Reykjavík
Neytendur eru beðnir um að neyta vörunnar ekki og farga henni eða skila til verslunar þar sem hún var keypt.
Ítarefni:
- Tilkynning um innköllun: Lagsmaður ehf. / Fiska.is
- Fréttatilkynning Heilbrigðiseftirlits Garðabæjar, Hafnarfjarðar, Kópavogs, Mosfellsbæjar og Seltjarnarness
- Tilkynning um innköllun: Market Hong Phat ehf
- Fréttatilkynning Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur
- Innkallanir á heimasíðu Matvælastofnunar