Vanmerktur ofnæmisvaldur í Pestó
Innkallanir -
16.03.2023
Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.
Matvælastofnun varar þá sem eru með eggjaofnæmi við neyslu á einni framleiðslulotu af Pestó frá Brauð & co. Parmesan ostur sem er í pestóinu inniheldur rotvarnarefnið lysósím sem búið er til úr eggjum. Varan er ekki skaðleg þeim sem ekki eru með ofnæmi fyrir eggjum. Fyrirtækið Brauð & co. ehf. hefur innkallað vöruna í samráði við Heilbrigðiseftirlit Garðabæjar, Hafnarfjarðar, Kópavogs, Mosfellsbæjar og Seltjarnarness (HEF)
Upplýsingar um vöruna sem innköllunin einskorðast við::
- Vörumerki: Brauð & Co
- Vöruheiti: Pestó
- Framleiðandi: Brauð & Co
- Framleiðsluland: Ísland
- Lotunúmer/best fyrir dagsetningar: bf. 27.03.23
- Geymsluskilyrði: Kælivara 2-4°C
- Dreifing: Útsölustaðir Brauð & Co
Frekari upplýsingar veitir gæðastjóri Brauð og co. S. 692-9761 , netfang: ingibjorg@braudogco.is
Ítarefni: