Fara í efni

Vanmerktur ofnæmis- og óþolsvaldur í pálmasykri

Matvælastofnun varar neytendur sem hafa ofnæmi eða óþol fyrir súlfíti (brennisteinsdíoxíði) við neyslu á einni lotu af pálmasykri frá Thai dancer vegna þess að súlfítið kemur ekki fram í merkingum vörunnar. Fyrirtækið Filipino store ehf. hefur innkallað vöruna í samráði Heilbrigðiseftirlit Garðabæjar, Hafnarfjarðar, Kópavogs, Mosfellsbæjar og Seltjarnarnes.

Matvælastofnun fékk upplýsingar um vöruna í gegnum RASFF hraðviðvörunarkerfi Evrópu um matvæli og fóður.

Innköllunin á einungis við eftirfarandi framleiðslulotu:

  • Framleiðandi: Thai Dancer
  • Nafn vöru: Pálmasykur
  • Pakkning: 200g
  • Vörunúmer: 11396
  • Lotunúmer: 260724
  • Geymsluskilyrði: Þurrvara
  • Best fyrir dagsetning: 26-07-2026
  • Innflytjandi: Filipino store, Reykjavegi 62 Mosfellsbæ
  • Dreifing: Filipino store, Langarima 23 Reykjavík 

Neytendur geta skilað vörunni í búðina; ekki þarf að sýna kvittun, fullri endurgreiðslu heitið.


Getum við bætt efni síðunnar?