Fara í efni

Vanmerktur ofnæmis- og óþolsvaldur í kjötsúpu

Matvælastofnun varar við neyslu á einni framleiðslulotu af kjötsúpu í 1/2 dós frá Ora vegna þess að hún inniheldur ofnæmisvaka soja og mjólk sem ekki eru merktir á dósinni. Fyrirtækið hefur í samráði við heilbrigðiseftirlit Heilbrigðiseftirlit Garðabæjar, Hafnarfjarðar, Kópavogs, Mosfellsbæjar og Seltjarnarness innkallað vöruna.

Innköllunin á eingöngu við eftirfarandi framleiðslulotu

  • Vörumerki: Ora
  • Strikamerki: 5 690519 222304
  • Vöruheiti: Kjötsúpa ½ dós niðursoðin
  • Framleiðandi: Ora (Myllan-Ora ehf)
  • Lotunúmer: L101257 / best fyrir dagsetning: 19.09.2028
  • Dreifing: Fjarðarkaup, Kaupfélag Skagfirðinga, Vöruhús Samkaupa

Neytendur sem keypt hafa vöruna og eru með ofnæmi eða óþol fyrir soja og / eða mjólk eru beðnir um að neyta hennar ekki, farga eða skila henni til OJK – Ísam eða þar sem varan var keypt. 

Ítarefni


Getum við bætt efni síðunnar?