Vanmerktur ofnæmis- og óþolsvaldur í súkkulaðiböku
Innkallanir -
25.10.2012
Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.
Matvælastofnun hefur fengið upplýsingar frá heilbrigðiseftirliti Suðurnesja um sölustöðvun og innköllun af markaði á „Franskri lúxusböku - Súkkulaðisælu“ þar sem ekki kemur fram að varan inniheldur soja-lesitín, sem er þekktur ofnæmisvaldur. Gott í kroppinn ehf. hefur, í samráði við heilbrigðiseftirlitið, ákveðið að innkalla af markaði vöruna af markaði. Ekki kemur fram á umbúðum vörunnar að hún inniheldur lesitín úr sojabaunum.
Lýsing:
- Vöruheiti: „Frönsk lúxusbaka-Súkkulaðisæla“.
- Nettóþyngd: 480 g
- Sölu- og dreifingaraðili: Gott í Kroppinn, Valhallarbraut 743, 235 Reykjanesbæ
- Umbúðir: Plastöskjur
- Dreifing: Verslanir Hagkaups (Spöng, Skeifunni og Smáralind).