Vanmerktur ofnæmis- og óþolsvaldur í bernaisesósu
Innkallanir -
30.11.2012
Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.
Matvælastofun hefur fengið upplýsingar frá heilbrigðiseftirlitinu í Reykjavík um vanmerkt matvæli. Um er að ræða bernaisesósu sem er vanmerkt. Fyrirtækið hefur innkallað vöruna og endurmerkt. Vert er að vekja athygli á því að matvæli með mjólkursykri eru skaðlaus þeim sem ekki hafa óþol eða ofnæmi fyrir mjólkurvörum.
- Vörumerki: E. Finnsson
- Vöruheiti: Bernaisesósa, 180 ml.
- Innflytjandi : Vogabær, Eyrartröð 2a, 220 Hafnarfirði
- Auðkenni/skýringartexti: E. Finnsson bernaise sósa, strikanúmer 5690575211618, Inniheldur laktósa ( unnið úr mjólk), 180 ml.
- Laga- /reglugerðarákvæði: Með vísun til 4. gr. reglugerðar nr. 503/2005 um merkingu matvæla, með síðari breytingum, og 30. gr. laga nr. 93/1995 um matvæli, með síðari breytingum, var fyrirtækinu skylt að stöðva þegar dreifingu matvæla sem vanmerkt eru ofnæmis og óþolsvöldum í innihaldslýsingu og innkalla þau úr verslunum.
- Áætluð dreifing innanlands: Um allt land