Vanmerktir ofnæmis- og óþolsvaldar í sósum
Matvælastofnun hafa borist þær upplýsingar að Íslensk hollusta ehf. hafi, í samráði við Heilbrigðiseftirliti Hafnarfjarðar- og Kópavogssvæðis, ákveðið að innkalla af markaði Eðalsölvasósu, Fjallagrasasósu og Kobuþarasósu þar sem sósurnar innihalda sojasósu sem aftur inniheldur hveiti. Hveiti er ekki gefið upp í innihaldslýsingu. Búið er endurmerkja vörurnar. |
Vöruheiti: Eðal sölvasósa (strikanúmer 5694110010506), Fjallagrasasósa (strikanúmer 569411001050), Kombuþarasósa (strikanúmer 5694110010506).
Ábyrgðaaðili; framleiðandi: Íslensk hollusta ehf., Hafnarfirði.
Ástæða: Varan inniheldur sojasósu, skv. innihaldslýsingu. Sojasósa er samsett innihaldsefni sem merkja má með eigin heiti í innihaldslýsingu að því gefnu að með fylgi innihaldslýsing efnisins. Þessa innihaldslýsingu vantar. Sojasósan inniheldur líklega hveiti, sem er ofnæmis- og óþolsvaldur.
Laga- /reglugerðarákvæði: 13. gr. reglugerðar nr. 503/2005 um merkingu matvæla, með síðari breytingum. 8. og 30. gr. laga nr. 93/1995 um matvæli, með síðari breytingum.
Áætluð dreifing innanlands: Heilsubúðir, ferðamannaverslanir og ýmsar matvöruverslanir (sjá heimasíðu Íslenskrar hollustu).
Ítarefni
- Listi yfir innkallanir á matvælum
- Fréttatilkynning frá heilbrigðiseftirliti Hafnarfjarðar- og Kópavogssvæðis