Vanmerktir ofnæmis- og óþolsvaldar í lasagna
Innkallanir -
18.03.2011
Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.
Matvælastofnun hefur fengið upplýsingar frá matvælaeftirliti Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur um stöðvun sölu og innköllun af markaði á "Lasagne ferskt", merkt Krónunni, þar sem ofnæmis- og óþolsvaldur er ekki merktur á umbúðum vörunnar.
|
|
Vöruheiti: "Lasagne ferskt", merkt Krónunni. Ábyrgðaraðili; framleiðandi, innflytjandi og/eða dreifingaraðili: Vörurnar eru framleiddar af Gæðakokkum, Borgarnesi, fyrir Krónuna, Bíldshöfða 20, 110 Reykjavík. Auðkenni/skýringartexti: Afurðir úr korni sem inniheldur glúten eru ekki merktar á umbúðum "Lasagne ferskt", merkt Krónunni. Að auki eru gerðar ýmsar aðrar athugasemdir við merkingar vörunnar. Strikanúmer 2204532011253. Laga- /reglugerðarákvæði: 13. gr. reglugerðar nr. 503/2005 um merkingu matvæla, með síðari breytingum, 8. gr. laga nr. 93/1995 um matvæli, með síðari breytingum. Einnig 5. gr., 7. tl. 6. gr., 8. gr. og 20. gr. reglugerðar nr. 503/2005, reglugerð nr. 410/2009 um merkingu næringargildis matvæla, með síðari breytingum, 30. gr. laga nr. 93/1995 um matvæli. |
Áætluð dreifing innanlands: Verslanir Krónunnar um land allt
Ítarefni