Vanmerktir ofnæmis- og óþolsvaldar í kjúklingasúpu
Innkallanir -
09.05.2011
Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.
|
Matvælastofnun hafa
borist upplýsingar um vanmerkta ofnæmis- og
óþolsvalda (hveiti) í kjúklingasúpu frá Ektafiski og hefur hún verið innkölluð af
markaði. Vöruheiti: "Matarmikil kjúklingasúpa með núðlum og grænmeti". Ábyrgðaraðili; framleiðandi, innflytjandi og/eða dreifingaraðili: Ektafiskur ehf., Hafnargötu 6, 621 Dalvík. Auðkenni/skýringartexti: Matarmikil kjúklingasúpa með núðlum og grænmeti. Strikamerki vöru 5690870014136. Merkt" Best fyrir dagsetning " 25.10.2011 og 06.09.2011. Dreifing: Verslanir Hagkaupa og Kostur á Dalsvegi. Ítarefni
|