Vanmerktir ofnæmis- og óþolsvaldar í kartöflusalati
Innkallanir -
18.03.2011
Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.
Matvælastofnun hefur fengið upplýsingar frá matvælaeftirliti Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur um stöðvun sölu og innköllun á kartöflusalati merkt Krónunni vegna þess að það vantar ofnæmis-og óþolsmerkingar.
Ábyrgðaraðili; framleiðandi, innflytjandi og/eða dreifingaraðili: Varan er framleidd af Salathúsinu, Reykjavík, fyrir Krónuna, Bíldshöfða 20, 110 Reykjavík.
Auðkenni/skýringartexti: Varan inniheldur afurð úr eggjum án þess að það komi fram á umbúðunum. Strikanúmer: 5690587999924.
Laga- /reglugerðarákvæði: 13. gr. reglugerðar nr. 503/2005 um merkingu matvæla, með síðari breytingum. 8. gr. laga nr. 93/1995 um matvæli.
Áætluð dreifing innanlands: Verslanir Krónunnar um land allt.
Ítarefni