Vanmerktir ofnæmis- og óþolsvaldar í ís
Innkallanir -
26.04.2011
Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.
Matvælastofnun hafa borist upplýsingar frá matvælaeftirliti Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur um innköllun á "Topp5" ís frá Emmessís vegna vanmerktra ofnæmis- og óþolsvalda.
|
|
Vöruheiti: "Topp5". Ábyrgðaraðili; framleiðandi, innflytjandi og/eða dreifingaraðili: Varan er framleidd af Emmessís, Bitruhálsi 1, 110 Reykjavík. Laga- /reglugerðarákvæði: 2. tl. 6 gr., 8. og 13. gr. reglugerðar nr. 503/2005 um merkingu matvæla, með síðari breytingum. 8. og 30. gr. laga nr. 93/1995 um matvæli, með síðari breytingum. Áætluð dreifing innanlands: Fyrirtækið hefur ekki sent dreifingarlista. Vörunni er væntanlega dreift um land allt. |
Auðkenni/skýringartexti: Um er að ræða svokallaða "Topp5" sölueiningu frá Emmessís, en í henni eru fimm mismunandi gerðir ísvara, alls 20 stk. Á umbúðir sölueiningarinnar vantar allar innihaldslýsingar sbr. 2. tl. 6. gr. og 8. gr. reglugerðar 503/2005 um merkingar matvæla með síðari breytingum. Í vörunni eru Daim toppar, en þekkt er að þeir innihalda óþols- og ofnæmisvaldana sojalesitín og hnetur (möndlur). Í innihaldslýsingum á umbúðum varanna kemur ekki fram að þær innihalda hnetur og sojalesitín en hvort tveggja er á lista yfir ofnæmis- og óþolsvalda. Samkvæmt matvælalöggjöfinni eiga ofnæmis- og óþolsvaldar að vera skýrt merktir í merkingum matvæla. Fyrirtækið hefur ekki sinnt innköllunarkröfu Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur og því liggur dreifingarlisti ekki fyrir.
Ítarefni