Vanmerktar smjördeigskökur vegna óleyfilegs tungumáls
Innkallanir -
26.01.2024
Matvælastofnun hefur fengið upplýsingar frá heilbrigðiseftirlitinu um innköllun á Estrella de Hojaldre spönskum smjördeigskökum frá Dulcinove Pastelería sem Costco Ísland flytur inn. Innköllunin er vegna vanmerkingar en einungis var merking á spænsku. Upplýsingar sem skylt er að merkja á matvörur verða að vera á íslensku eða ensku eða norðurlandamáli öðru en finnsku. Fyrirtækið hefur innkallað frá kaupendum í samráði við heilbrigðiseftirlit Heilbrigðiseftirlit Garðabæjar, Hafnarfjarðar, Kópavogs, Seltjarnarness og Mosfellsbæjar (HEF).
Innköllunin á eingöngu við um eftirfarandi framleiðslulotu;
- Vörumerki: Dulcinove Pastelería
- Vöruheiti: Puff Pastry Stars
- Framleiðandi: Productos Jesus S.L.
- Innflytjandi: Costco Ísland
- Framleiðsluland: Spánn
- Lotunúmer/best fyrir dagsetningar: Júní 11 2024, lota 011-624
- Geymsluskilyrði: Geymist á þurrum stað við stofuhita.
- Dreifing: Costco Ísland
Kaupendum sem hafa verslað vöruna í Costco er bent á að skila henni í verslunina gegn fullri endurgreiðslu.