Vanmerktur ofnæmis- og óþolsvaldur í sælgæti
Innkallanir -
31.01.2024
Matvælastofnun varar þá sem hafa ofnæmi-eða óþol fyrir heslihnetum við neyslu á einni framleiðslulotu af Nóa Kropp 200 g sem Nói og Siríus framleiðir. Fyrirtækið hefur innkallað sælgætið í samráði við heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur.
Innköllunin á eingöngu við eftirfarandi framleiðslulotu:
- Vörumerki: Nóa Kropp
- Vöruheiti: Súkkulaðihúðaðar maískúlur
- Geymsluþol: Best fyrir dagsetning: 28. maí 2025
- Nettómagn: 200 g
- Framleiðandi: Nói Siríus, Hesthálsi 2-4, 110 Reykjavík
- Framleiðsluland: Ísland
- Heiti og heimilisfang fyrirtækis sem innkallar vöru: Nói Siríus, Hesthálsi 2-4, 110 Reykjavík.
- Dreifing: Verslanir um land allt
Neytendum, með ofnæmi eða óþol, sem keypt hafa vöruna er bent á að neyta hennar ekki og skila hennar til fyrirtækisins eða farga henni.