Slysahætta af bjórdósum
Innkallanir -
09.06.2021
Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.
Matvælastofnun varar við neyslu á tveimur framleiðslulotum af Benchwarmers Citra Smash bjórdósum frá Benchwarmers Brewing Co. Dósirnar geta bólgnað út og sprungið. ÁTVR hefur í samráði við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur innkallað vöruna.
Upplýsingar um vöruna:
- Vörheiti: Benchwarmers Citra Smash
- Framleiðandi: Benchwarmers Brewing Co.
- Nettómagn: 330 mL
- Best fyrir dags. : 19.12.2021 og 22.12.2021
- Strikamerki: 735009942004
- Framleiðsluland: Svíþjóð
- Dreifing: Vínbúðir ÁTVR: Kringlunni, Heiðrúnu, Skútuvogi, Skeifunni, Dalvegi, Smáralind, Garðabær, Hafnarfirði, Reykjanesbæ og Akureyri.
Neytendur sem hafa keypt vöruna eru beðnir um að farga henni eða skila í næstu Vínbúð. Ef umbúðir eru bólgnar ber að gæta fyllstu varúðar. Nánari upplýsingar veitir Skúli Þór á vörusviði ÁTVR, sími 842-2747 og Sigrún Ósk sími 895-6484.
Ítarefni