Salmonella í kjúklingi
Innkallanir -
08.04.2024
Matvælastofnun varar við neyslu á tveimur framleiðslulotum af ferskum kjúklingi frá Matfugli ehf. vegna gruns um salmonellusmit. Fyrirtækið hefur innkallað vöruna og sent út fréttatilkynningu.
Innköllunin á einungis við eftirfarandi framleiðslulotur:
- Vöruheiti: Ali, Bónus
- Framleiðandi: Matfugl ehf, Völuteigi 2, 270 Mosfellsbæ
- Lotunúmer: 011-24-09-3-66 og 011-24-09-2-07 (heill kjúklingur, bringur, lundir, lærakjöt, bitar, kryddlegnar bringur), pökkunardagur 02.04.2024 - 05.04.2024
- Dreifing: Bónusverslanir, Krónuverslanir, Fjarðarkaup, Hagkaup, Hlíðarkaup, Kauptún, Kassinn, Nettó.
Viðskiptavinir sem keypt hafa umrædda vöru eru hvattir til að neyta hennar ekki, farga eða skila til viðkomandi verslunar eða til Matfugls efh, Völuteigi 2, Mosfellsbæ.