Uppfærð-Salmonella í kökum
Innkallanir -
29.08.2024
Matvælastofnun varar við neyslu á nokkrum framleiðslulotum (uppfærðar) af frönskum makkarónukökum með pistasíukremi frá Joie De Vivre sem Costco Iceland hefur flutt inn, vegna salmonellumengunar. Fyrirtækið hefur í samráði við heilbrigðiseftirlit Garðabæjar, Hafnarfjarðar, Kópavogs, Mosfellsbæjar og Seltjarnarness innkallað vörurnar. Einungis selt í verslun Costco.
Innköllunin á eingöngu við eftirfarandi framleiðslulotur:
- Vörumerki: Joie De Vivre
- Vöruheiti: French Macarons 36pk
- Framleiðandi: Ajinomoto Foods Europe
- Innflytjandi: Costco UK/Costco Iceland
- Framleiðsluland: Frakkland
- Lotunúmer/best fyrir dagsetningar: 14/08/2024, 19/08/2024, 09/09/2024, 11/09/2024, 18/09/2024, 27/09/2024.
- Geymsluskilyrði: 0-4°C (kælivara)
- Dreifing: Costco Iceland
Neytendur sem keypt hafa vöruna er bent á að neyta hennar ekki heldur farga eða skila henni til verslunar.