Salmonella í kjúklingabitum
Innkallanir -
04.03.2021
Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.
Matvælastofnun varar við neyslu á SFC Boneless Bucket kjúklingabitum vegna salmonellumengunar. Aðföng sem flytur inn kjúklingabitana hefur innkallað vöruna í samráði við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur.
Matvælastofnun fékk upplýsingar frá Bretlandi í gegnum Infosan alþjóðaviðvörunarkerfi matvælastofnana og heilbrigðiseftirlitið hafði einnig fengið upplýsingar frá Aðföngum.
Innköllunin á einungis við eftirfarandi best fyrir dagsetningar:
- Vöruheiti: SFC Boneless Bucket, Crunchy golden pieces of tasty, succulent Chicken Crispy Strips, Dippers and Poppets coated in a Southern Fried Style coating
- Nettómagn: 650g
- Strikamerki: 5031532020629
- Geymsluskilyrði: Frystivara, -18°C
- Lotunúmer: L19720
- Best fyrir dagsetning: 28-11-2021
- Upprunaland: Pólland
- Framleiðsluland: Bretland
- Innflytjandi: Aðföng, Skútuvogi 7-9, 104 Reykjavík
- Dreifing: Hagkaupsverslanir um allt land
Viðskiptavinir sem keypt hafa ofangreinda vöru eru beðnir um að neyta hennar ekki og farga en einnig er hægt að skila henni í versluninni þar sem hún var keypt gegn endurgreiðslu. Nánari upplýsingar veitir gæðastjóri Aðfanga í síma 530 5600 eða í gegnum netfangið gaedastjori hjá adfong.is.
Ítarefni
- Fréttatilkynning Aðfanga
- Fréttatilkynning Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur
- Upplýsingasíða Matvælastofnunar um meðhöndlun á hráum kjúklingi
- Þessum upplýsingum átt þú rétt á - upplýsingaspjald Matvælastofnunar um merkingar matvæla
- Listi Matvælastofnunar yfir innkallanir
- Neytendavakt Matvælastofnunar á Facebook