Örverumengun í melónufræjum
Innkallanir -
03.03.2025
Matvælastofnun varar við neyslu á Nina Internationar muldum melónufræjum frá Ghana sem Lagsmaður ehf. flytur inn vegna gruns um örverumengun. Fyrirtækið hefur í samráði við Heilbrigðiseftirlit Garðabæjar, Hafnarfjarðar, Kópavogs, Mosfellsbæjar og Seltjarnarnes ( HEF) innkallað vöruna.
Tilkynning kom í gegnum RASFF hraðviðvörunarkerfi Evrópu um hættuleg matvæli og fóður á markaði.
Eingöngu er verið að innkalla eftirfarna framleiðslulotu:
- Vörumerki: Nina International
- Vöruheiti: Ground egusi melon seeds 227g
- Best fyrir: 01.06.2026
- Nettómagn: 227g
- Geymsluskilyrði: Þurrvara
- Framleiðandi: Nina International, 3717 West St, Landover, MD 20785, Bandaríkin
- Framleiðsluland: Ghana
- Heiti og heimilisfang fyrirtækis sem innkallar vöru: Fiska.is Nýbýlavegi 6 200 Kópavogur
- Dreifing: Verslun Fiska.is
Neytendur sem keypt hafa vöruna er bent á að neita hennar ekki heldur farga eða fara með hana í verslunina til að fá endurgreitt.