Ómerktir ofnæmis- og óþolsvaldar í curry paste og núðlum
Innkallanir -
09.06.2021
Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.
Matvælastofnun varar neytendur með ofnæmi eða óþol við við neyslu á Panang Curry Paste, Kari Curry Paste og Samyang Cheese Ramen núðlum vegna vanmerkinga á ofnæmis- og óþolsvöldum. Panang Curry Paste og Kari Curry Paste innihalda rækjur en Samyang Ramen núðlur innihalda hveiti, mjólk, soja og sesam. Verslunin Álfheimar hefur innkallað vörurnar af markaði í samráði við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur.
Innköllunin á við um eftirfarandi þrjár framleiðslulotur:
- Vöruheiti: Panang Curry Paste
- Framleiðandi: Nittaya Thai Curry Products
- Þyngd: 50 gr
- Best fyrir dagsetning: 26.8.2021
- Strikamerki: 8 855237 000581
- Framleiðsluland: Taíland
- Dreifing: Verslunin Álfheimar
- Vöruheiti: Kari Curry Paste
- Framleiðandi: Nittaya Thai Curry Products
- Þyngd: 50 gr
- Best fyrir dagsetning: 6.9.2020
- Strikamerki: 8 855237 000598
- Framleiðsluland: Taíland
- Dreifing: Verslunin Álfheimar
- Vöruheiti: Stir-fried Noodle Hot Spicy Chicken Cheese Flavor Ramen
- Framleiðandi: Samyang Foods Co., Ltd
- Þyngd: 140 gr
- Best fyrir dagsetning: 25.1.2023
- Strikamerki: 8 801073 113268
- Framleiðsluland: Norður- Kórea
- Dreifing: Verslunin Álfheimar
Neytendur sem keypt hafa vörurnar geta skilað þeim í Verslun Álfheima þar sem hún var keypt gegn endurgreiðslu. Vakin er athygli á því að þeir sem ekki hafa ofnæmi eða óþol fyrir ofantöldu þurfa ekki að forðast vörurnar.