Ómerkt glúten í sætukartöflu pakora
Innkallanir -
16.05.2023
Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.
Matvælastofnun varar við nokkrum framleiðslulotum af Gosh! Sweet potato Pakora sem flutt er inn og selt í verslun Costco vegna ómerkts glútens. Fyrirtækið hefur í samráði við Heilbrigðiseftirlit Garðabæjar, Hafnafjarðar, Kópavogs, Mosfellsbæjar og Seltjarnarness innkallað vöruna með tölvupósti til viðskiptavina sem keypt hafa vöruna.
Innköllunin á eingöngu við um eftirfarandi framleiðslulotur:
- Vörumerki: Gosh
- Vöruheiti: Gosh Sweet Potato Pakora
- Best fyrir dagsetning: 10/05/2023, 19/05/2023, 25/05/2023, 31/05/2023
- Framleiðandi: Gosh
- Framleiðsluland: Bretland
- Innflytjandi: Costco, Kauptúni 3, Garðabæ
- Dreifing: Verslun Costco
Neytendum sem keypt hafa vöruna og eru með glútenóþol/ofnæmi er bent á að neyta hennar ekki heldur farga eða skila henni til Costco gegn endurgreiðslu.
Ítarefni
- Fréttatilkynning frá Costco
- Aðvörun um ofnæmi og óþolsvald frá Costco
- Nánar um ofnæmis- og óþolsvala á heimasíðu Matvælastofnunar
- Neytendavakt Matvælastofnunar