Ólöglegt varnarefni í núðlum með kjúklingi
Innkallanir -
05.01.2022
Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.
Matvælastofnun varar við neyslu á einni framleiðslulotu af Indo Mie special chicken noodles sem Lagsmaður flytur inn. Varnarefnið etýlen oxíð fannst í vörunni en það er ólöglegt að nota það við matvælaframleiðslu. Fyrirtækið hefur innkallað núðlurnar í samráði við heilbrigðiseftirlit Hafnarfjarðar, Garðarbæjar og Kópavogs.
Innköllunin á einungis við eftirfarandi framleiðslulotu:
- Vörumerki: Indo Mie
- Vöruheiti: Indo Mie special chicken noodles 75g
- Innflytjandi: Lagsmaður ehf. / Fiska.is
- Best fyrir: 29/3/2022
- Framleiðsluland: Indonesia
- Geymsluskilyrði: Á þurrum stað
- Dreifing: Verslun Fiska.is, Nýbýlavegi 6, 200 Kópavogur
Neytendum sem keypt hafa vöruna er bent á að neyta hennar ekki og skila henni til verslun fiska.is á Nýbýlavegi í Kópavogi.
Ítarefni
- Fréttatilkynning frá Lagsmanni ehf.
- Fréttatilkynning frá heilbrigðiseftirliti Hafnarfjarðar, Garðabæjar og Kópavogs