Óleyfileg innihaldsefni í fæðubótarefnum
Innkallanir -
09.08.2013
Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.
Matvælastofnun hefur fengið upplýsingar frá Heilbrigðiseftirliti Reykjavikur um stöðvun á dreifingu og innköllun á alls átta fæðubótarefnum vegna óleyfilegra innihaldsefna og lyfjavirkra efna.
- Vörumerki: Natrol
- Vöruheiti: Mood+, Water Pill, Black Cohosh Extract 80 mg, Hot Flashex, Tropical Thin, Glucosamine 1500 mg, Chondroitin 1200 mg, Hyaluronic Acid MSM & Glucosamine, Glucosamine Chondroitin MSM.
- Framleiðandi/Innflytjandi: Natrol, Inc., Bandaríkin/ Sanitas heildverslun ehf., Skútuvogi 3, 104 Reykjavík
- Auðkenni/skýringartexti: Óleyfileg innihaldsefni (viðbætt koffín) og lyfjavirk efni.
- Veittur frestur ( taka vöru af markaði/innkalla vöru): 7. ágúst,/22. ágúst.
- Dreifing: Verslanir Krónunnar