Döðlur óhæfar til neyslu
Innkallanir -
13.01.2025
Matvælastofnun varar við neyslu á nokkrum framleiðslulotum af Til hamingju döðlum sem Nathan og Olsen flytur inn vegna þess að varan stenst ekki gæðakröfur. Fyrirtækið hefur í samráði við heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur innkallað vöruna.
Innköllunin á einungis við eftirfarandi framleiðslulotur:
- Vörumerki: Til hamingju
- Vöruheiti: Döðlur saxaðar
- Geymsluþol: Best fyrir lok: 06.2025, 08.2025, 10.2025
- Strikamerki: 5690595095496
- Nettómagn: 250 g
- Framleitt fyrir: Nathan & Olsen, Klettagörðum 19, 104 Reykjavík
- Framleiðsluland: Bretland
- Innflytjandinn: Nathan & Olsen, Klettagörðum 19, 104 Reykjavík.
- Dreifing: Aðföng (Bónus og Hagkaup), Verslunin Einar Ólafsson, Fjarðarkaup, Heimkaup, Hlíðarkaup, Hraðkaup Hellisandi, Kaupfélag Skagfirðinga, Kauptún, Krónan, Bláfell, Melabúðin, Smáalind, Verslunin Álfheimar, Verslunin Kassinn.
Neytendum sem keypt hafa vöruna er bent á að neyta hennar ekki heldur farga eða skila henni í verslun gegn endurgreiðslu.