Noroveirur í hindberjum
Innkallanir -
30.10.2009
Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.
|
Sýkingar af völdum
noroveira sem rekja má til innfluttra frosinna hindberja hafa komið upp
í Finnlandi og Svíþjóð í haust. Talið er að rekja megi smitið til
vökvunar með menguðu vatni. Sænska og finnska matvælastofnunin hafa
ráðlagt stóreldhúsum, veitingastöðum og neytendum að hita innflutt
frosin ber ef nota á þau í eftirrétti og ávaxtadrykki. Ekki er vitað
um noroveirusýkingar hérlendis sem má rekja til hindberja.
Matvælastofnun bendir neytendum á, að hitun á frosnum innfluttum hindberjum er fyrirbyggjandi til að forðast sýkingar af völdum noroveira. Hitun í 2 mínútur við 90 °C minnkar hættu á sýkingu. |
Ítarefni