Fara í efni

Náttúrulegt eiturefni í kryddi

Matvælastofnun varar við neyslu á einni framleiðslulotu af Prymat cumin sem var til sölu hjá Mini Market vegna náttúrulegrar eiturefna sem greindust yfir leyfilegum mörkum. Fyrirtækið hefur í samráði við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur stöðvað sölu og innkallað vöruna.

Tilkynningin um innköllunina kom í gegnum hraðviðvörunarkerfi Evrópu um hættuleg matvæli og fóður á markaði.

Innköllunin á eingöngu við um eftirfarandi framleiðslulotu:

  • Vörumerki: Prymat
  • Vöruheiti: Ground cumin / Kmin rzymski mielony
  • Geymsluþol: Best fyrir Dagsetning: 31.03.2026
  • Strikamerki: 5901135032001
  • Nettómagn: 15 g
  • Framleiðandi: Prymat sp. z.o.o.
  • Framleiðsluland: Pólland
  • Innflutningsfyrirtækis: Mini Market., Faxafeni 14, 108 Reykjavík
  • Dreifing: Mini Market ehf, Drafnarfell 14, 111 Reykjavík

Neytendum sem keypt hafa vöruna er bent á að neyta hennar ekki, farga eða skila til verslunarinnar.

Ítarefni


Getum við bætt efni síðunnar?