Fara í efni

Mygla í skyri

Matvælastofnun varar neytendur við einni framleiðslulotu af kaffiskyri með kaffi og  vanillubragði frá Örnu ehf. vegna framleiðslugalla en í vörunni myndaðist mygla. Fyrirtækið hefur í samráði við Matvælastofnun innkallað vöruna.

Innköllunin á einungis við eftirfarandi framleiðslulotu:

  • Vöruheiti: Kaffiskyr með kaffi og vanillubragði
  • Framleiðandi: Arna ehf., Hafnargata 80, 415 Bolungarvík
  • Umbúðir: 200 g askja
  • Geymsluþol: Best fyrir 14.11.2024
  • Dreifing: Allar verslanir sem selja vörur frá Örnu ehf.

Neytendum sem hafa keypt vöruna með umræddri dagsetningu er bent á að neyta hennar ekki, farga eða skila vörunni í þá verslun þar sem hún var keypt eða snúið sér beint til Örnu. 

Ítarefni:

 


Getum við bætt efni síðunnar?