Mygla í pasta
Innkallanir -
08.01.2021
Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.
Matvælastofnun varar neytendur við tveimur tegundum af La Pasta di Alessandra pasta: Tortellini con ripieno di carne og Tortellini con ripieno di formaggio, vegna myglu. Fyrirtækið Aðföng, sem flytur inn pastað, hefur stöðvað sölu og innkallað vörurnar.
Innköllunin á einungis við eftirfarandi framleiðslulotur:
- Vörumerki: La Pasta di Alessandra
- Vöruheiti: Tortellini con ripieno di carne
- Best fyrir dagsetning: 16-10-2021
- Strikamerki: 8001195333005
- Nettómagn: 1000 g
- Framleiðandi: Nuovo Pastificio Italiano S.r.l.
- Framleiðsluland: Ítalía
- Vörumerki: La Pasta di Alessandra
- Vöruheiti: Tortellini con ripieno di formaggio
- Best fyrir dagsetning: 16-10-2021
- Strikamerki: 8001195333029
- Nettómagn: 1000 g
- Framleiðandi: Nuovo Pastificio Italiano S.r.l.
- Framleiðsluland: Ítalía
- Dreifing: Í verslunum Bónusar
Viðskiptavinum sem keypt hafa vörurnar er ráðlagt að neyta þeirra ekki og farga en einnig er hægt að skila þeim í verslunina þar sem þær voru keyptar gegn fullri endurgreiðslu. Nánari upplýsingar veitir gæðastjóri Aðfanga í síma 530 5600 eða í gegnum netfangið gaedastjori hjá adfong.is.