Málmhlutur finnst í bökunarþurrefnablöndu
Innkallanir -
28.01.2022
Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.
Matvælastofnun varar við neyslu á Pancake & Waffle Mix Classic - High Protein Baking Mix þurrefnablöndu frá Bodylab sem HB heildverslun ehf. flytur inn til landsins. Aðskotahlutur (málmhlutur) fanns í vörunni. Fyrirtækið hefur með aðstoð heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur innkallað vöruna.
Innköllunin á eingöngu við um eftirfarnar framleiðslulotur:
- Vörumerki: Bodylab
- Vöruheiti: Pancake & Waffle Mix Classic - High Protein Baking Mix
- Geymsluþol: Best fyrir Dagsetning 01.09.2023 og 01.11.2023
- Lotunúmer: 10921/5176 og 11121/5176
- Nettómagn: 500 g
- Strikamerki: 5711657012340
- Framleiðandi: Bodylab
- Framleiðsluland: Danmörk
- Innflytjandi: HB heildverslun ehf., Skeifunni 10, 108 Reykjavík.
- Dreifing: Verslanir Hagkaupa, Nettó og Krónunnar um land allt.
Neytendur sem keypt hafa vöruna er bent á að neyta hennar ekki, farga eða skila henni til verslunar gegn endurgreiðslu.