Lyf í fæðubótarefni
Innkallanir -
02.06.2014
Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.
Matvælastofnun hefur fengið upplýsingar frá Heilbrigðiseftirliti Reykjavikur um stöðvun á dreifingu á fæðubótarefni vegna innihaldsefnis með lyfjavirkni. Frestur er gefinn til 3. júní að fjarlægja vöru af markaði. Varan inniheldur N-Acetyl-Cysteine sem flokkað er sem lyf á Íslandi.
- Vörumerki: Solaray
- Vöruheiti: NAC
- Framleiðandi: Nutraceutical Corp .
- Innflytjandi: Heilsa ehf., Bæjarflöt 1-3, 112 Reykjavík
- Framleiðsluland: Bandaríkin
- Rekjanleikaupplýsingar (lotunúmer, geymsluþolsmerking): 076280572322
- Dreifing: Heilsuhúsið Akureyri, Heilsuhúsið Smáratorgi, Heilsuhúsið Laugavegi, Heilsuhúsið Selfossi, Heilsuhúsið Lágmúla, Heilsuhúsið Kringlunni, Lifandi Markaður Fákafeni og Lifandi Markaður Borgartúni