Lyf í fæðubótarefnum
Matvælastofnun varar við neyslu á bandarískum fæðubótarefnum; Pro Power Knight Plus, NUX Male Enhancement og DINAMITE SUPER en þau hafa verið innkölluð að beiðni söluaðilans, Gear Isle, samkvæmt tilkynningu frá FDA (Matvæla- og lyfjastofnun Bandaríkjanna). Vörurnar teljast ekki örugg matvæli þar sem þau innihalda lyfjavirk efni sem er ekki leyfilegt í matvælum og gætu haft óæskileg áhrif á heilsu manna. Fæðubótaefnin voru seld í netverslun fyrirtækisins í Bandaríkjunum og voru lyfin ekki merkt í innihaldslýsingu á vörunum og er því um matvælasvindl að ræða.
Innköllunin á einungis við eftirfarnar framleiðslulotur:
- Vöruheiti: Pro power knight plus
- Lotunúmer/Best fyrir dagsetning: Ekkert lotunúmer /06/2026
- Vöruheiti: NUX male enchancement
- Lotunúmer/best fyrir dagsetning: RO 927996/12/25/2024
Neytendum sem keypt hafa þessar vörur í netverslun er bent á að neyta þeirra ekki, farga eða endursenda þær til söluaðilans, Gear Isle, sem heitir endurgreiðslu.
Ítarefni:
- Innköllun frá Gear Isle
- Innkallanir á heimasíðu FDA
- Innkallanir á heimasíðu Matvælastofnunar
- Neytendavakt Matvælastofnunar